Vor í lofti og nagladekk á tánum...ragnheiður tinna tómasdóttir
Smá óvissuferð um síðustu helgi gott stuff...
klárlega óvissuferð, óvissan var mikil og ennþá meiri daginn eftir.... skil þetta ekki, ég skipulagði þessa ferð en samt líður mér eins og ég hafi ekki verið í henni
tók titanic takta í stafni bátsins, var vinsamlegast beðin að stíga niður og hafa mig hæga...
.... dansaði af mér... ekki spikið því það er enn á sínum stað....
.... man ekki meir...
Ætlaði að skrá mig á líkamsræktarnámskeið.... námskeiðið búið
sendi Daða með bangsa í leikskólann..... bangsa vika í næstu viku
Komin á nagladekk... enda snjórinn að fara
hvar fæ ég hleðslutæki fyrri ericson heila ??
Ég er að safna fyrir sófasetti.... á einhver aflögu???ragnheiður tinna tómasdóttir
Jebb.... sorgar dagur í gær.... Var að setja upp myrkratjöld í herbergið mitt.Þurfti að saga svolítið, klippa og skrúfa svona til að koma þessu upp. Þurfti líka aðeins að nota SVARTAN ARTLINE PENNA til að merkja og svona.
Svo er ég líka svona rosa upptekin að grægja þetta drasl sem kostaðui 1790 kr í Rúmfatalagernum...... Legg frá mér OLÍU TÚSSPENNANN og held áfram að klappa gardínumun.....
...... Aron nær pennanum án þess að nokkur sjái...... GRÁT GRÁT......
Jebb takk fyrir góðan dag..... þriggja sæta sófinn er þakinn "listaverki" eftir 2 ára gamlann son minn.
það er kanski rétt að taka það fram að sófinn er ekki orðin árs gamall!!!
Mig langar að skæla!!
já og ófarirnar halda áfram því á laugardaginn síðasta, ætlaði ég að vera huggulega og bjóða ömmu minni á Fiskidaginn mikla á Dalvík. Amma kom og allir inn í bíl þá startaði bílinn ekki. HANN VAR STRAUMLAUS!!! jæja það er gott að eiga góða að og ég til mín mætti maður með startkapla.... en allt kom fyrir ekki..... Bílinn er ennþá rafnmagnslaus á planinu...... ÓNÝTUR.... verð að kaupa nýja....
Takk fyrir góðan dag
Þú færð sms þegar þetta er tilbúiðragnheiður tinna tómasdóttir
ég borðaði ógeðslega mikið.... fór aðra ferð og fékk mér ógeðslega mikið í viðbót.... ég var bara svo svöng... jæja... Ég skóflaði í mig og stóð á blístrinu og þá gerðist það!!!!.....
Rennilásinn á pilsinu mínu gaf sig, já þið heyrðuð rétt, ég át svo mikið að pilsið sem ég var í SPRAKK utan af mér.
Þarna sat ég eins og austur-evrópsk mella með frá hneppt pilsið. Ekki það að ég hafi eitthvað á móti austur-evrópu, það hefur bara komið svo oft upp á síðkastið eitthvað neikvætt um austur-evrópu. Ég var t.d að horfa á HOSTEL.....bbbbbrrrrr ekki horfa ein á þá mynd.
Allavegana.... sat sem fastast í sætinu mínu með jakkann yfir rennilásnum á pilsinu mínu þar til við fórum heim.... Ég borðaði ekki meira þann daginn.

Það hefði sennilega tekið mig um 30-40 mín að setja nýjan rennilás í pilsið..... EN...... NEI.... nennti því ekki og ákv frekar að fara með það á saumastofu.
Í gær rúmum 3 mán eftir að ég borðaði mig út úr pilsinu mínu ( Þetta var sko uppáhalds pilsið mitt) fór ég með pilsið á saumastofu.
Á móti mér tók gömul koma með gleraugu sem rétt gat litið upp frá saumavélinni þegar ég bauð henni góðann daginn.

"Þarf þetta að vera til í gær" sagði gamla konana með sinni hrjúfu röddu.
Í gær????.... er það hægt..... ég horfði undrandi á hana og sagði henni að vera ekkert að fikta í tímanum.... eftir helgi mundi henta mér ágætlega.
Ég sá hvernig fölsku tennurnar flæktust fyrir á meðan hún talaði við mig, og einhverra hluta vegna datt mér í hug hvort það væri ekki töff að setja demandi í falskar tennur. Bara svona aðeins til að poppa þær upp.
"PIMP MY TEETH" gæti verið heitið á auglýsinga-herferðinni.
Allavegana..... Gamla konan sagði að hún mundi senda mér SMS þegar pilsið væri tilbúið...
WHAT!!!.... það datt út úr mér... alveg fyrirvara laust.... "ÁTTU GSM-SÍMA"... Ég sá hvernig gamla konan snögg reiddist og sagði... "auðvitað á ég GSM-síma"

Það er kraftaverk ef ég fæ pilsið mitt nokkurn tíman aftur
Að sinni
Tinna... sam kann ekki að halda kjafti
Endilega takið þetta test...ragnheiður tinna tómasdóttir
http://funny-pictures.com/ecards/games/?cardurl=sex_or_nosex.html&title=Sex%20or%20No%20Sex#HE HE HE... þið verðið að taka þetta test.... ég var ekkert eðlilega léleg í því 6 rétt af 16.... greinilega á rangri hillu í lífinu...
Endilega deilið með okkur hinum... hversu "klár" þið eruð

Farið svo varlega í heimaleikfiminni.....
Mér finnst tattoo ljót...ragnheiður tinna tómasdóttir
Mér finnst tattoo ljót.... allavegna á konum.... reyndar líka á köllum en alveg sérstaklega ljót á konum.
Ég væri samt alveg til í að fá mér tattoo ef það ditti bara af mér eftir 1 mánuð eða eitthvað álíka.... nenni ekki að vera með sömu myndina í mörg ár...
Nema auðvitað að þetta væri mjög klassísk mynd eins og t.d PACMAN hver man ekki eftir pacman.... Pacman fær mig til að brosa... þið munið.... í gamladaga að missa sig yfir tölvunni.... fá blöðrur á þumalputtana...
Þetta er ekki svo cool tattoo en fær mig klárlega til að brosa :)
Að vera fullur á hjóli...ragnheiður tinna tómasdóttir
Ef ég keyri drukkin þá missi ég bílprófið.....Ef ég hjóla drukkin þá missi ég bílprófið...
Ef ég hjóla drukkiná hjólinu hans pabba þá missi ég bílprófið og sennilega herbergið mitt líka...
Ef ég missi bílprófið má ég ekki keyra.... og verð því að hjóla.... ekki satt??
En ef hjól flokkast sem ökutæki og þar af leiðandi má ekki ferðast á því drukkinn.... af hverju má maður þá hjóla próflaus????
Mér finnst að ef maður á að missa bílprófið við að hjóla fullur.... þá ætti maður ekki heldur að meiga hjóla eftir að maður er orðinn próflaus.....
En það er alveg vonlaust að vera bæði bíllaus og hjóla-laus...
Þess vegna ætla ég að leggja til að það verði leifilegt að hjóla fullur!!!
En ef þið viljið koma með mér og nokkrum vinkonum mínum að hjóla þá bjallið þið bara í mig!!!
Litli kisinn minnragnheiður tinna tómasdóttir
.jpeg)
Sjáið þið þetta litla sæta rassgat..
Þetta er litli kisinn minn. Þarna er hann bara sólarhringsgamall.
Hann heitir Patrekur og er algjör kúrari.
Ég ætlaði nú að eiga hann sjálf... en Stebbi og Sveindís er víst búin að panta hann :)
jæja
tussusnúður kveður...
Mikið eigið þið graðann kött!!!!ragnheiður tinna tómasdóttir
Jább... Kisinn okkar er búin að eignast ketling.... Jább þið heyrðuð rétt... einn ketling... og hann heitir Patrekur og er frátekinn... heheh stoltir foreldrar þar á ferð ;)En ein ung fræka mín kom í heimsókn til mín áðan og ég spurði hana hvort hún værir búin að kíkja á litla kisann þá sagði hún þessa gull setningu "Mikið eigið þið graðann kött".... Hvað er það???? og hvernig svarar maður svona?????
Sem betur fer var rautt andlit mitt falið á bakvið skjáinn á tölvunni....
Ég er af gamla skólanum... ég tala ekki um mitt kynlíf við hvern sem er.... ég tala ekki um hvort ég sé "gröð" eða ekki..... og allra síst ætla ég að tjá mig um það hvort kötturinn minn sé "graður" eða ekki.....
Tinna kveður og er bara þokkaleg í henni........ hendinni að sjálfsögðu... og látið ykkur ekki dreyma um annað....
GGGRRRRRR....
Og svo segið þið að það sé ekki puð að vera á bekknum!!!ragnheiður tinna tómasdóttir
Ég fór á handboltaleik í gær sem er ekki frásögu færandi..
Þarna sat ég á fremsta bekk og hafði stórar áhyggju af því að karl perrinn sem sat fyrir aftan mig væri að horfa á bera holdið sem kom í ljós þegar ég hallaði mér fram til að sjá eitthvað fyrir skallanum á kallinum sem sat mér við hlið..
Kemur ekki annars myndarlegur dani með þokkalega stinn læri… ( NEI ég kom ekki við þau ég bara sá það og JÁ ég var að horfa á lærin á honum)… En sjarminn af lærunum var nú fljótur að hverfa þegar bauna-djöfullinn tók eitthvað rosalegt ballet stökk ( sennilega ekki kallað það á handboltamáli en….) þannig að svita dropi af honum þeyttist í mig….. Jammý…. NOT…. JÆJA… ég komst fljótlega yfir þetta, gæsahúðin sem fylgdi klíjunni af danska svitanum var við það að hverfa þegar ég fæ boltann framann á sköflunginn….Djöfull var það GOTT….. Handboltar eru hér með á svartalistanum, og eiga ekki afturkvæmt!!
Þess á milli sem ég reyndi að tosa bolinn minn niður fyrir fellingarnar, þurrkaði danskan svita af kyninni á mér og strauk aumann sköflunginn reyndu tveir pollar að stinga úr mér augun með íslenska fánanum….
Ég fer ekki á annann leik nema í lögreglufylgd!!!
Tíminn líður hratt á gerfihnatta öld....ragnheiður tinna tómasdóttir
Hvað er þetta með tímann….
Stundum líður hann svo hratt að maður er rétt vaknaður þegar maður þarf að fara í háttinn aftur.. stundum brá ég á það ráð að vaka á nóttinni til þess eins að nýta daginn… skilaði samt litlu nema endalausri þreytu daginn eftir.. en pointið er það að vikurnar hafa liðið allt of hratt….Stundum er samt gott að tíminn líði hratt…. Eins og t.d núna…..
Hvað gerði ég guði….
Núna þegar ég þarf mest á því að halda haggast ekki vikan…
Hver hefði trúað því að ég skildi blóta því að helgin hefði verið svo lengi að líða…
Annars fór ég í ræktina í gær…. allir að klappa… þetta er afrek!!!
Ég verð orðinn massaköggull áður en þið vitið af…..ég skal rústa ykkur öllum í sjómann!!!
Samt ekki núna…. Ég er með strengi….
Talið við mig eftir svona viku… þegar strengirnir eru farnir og ég get lyft höndunum aftur….. já eða höfum það hálfan mánuð…
Sökum mikilla strengja sé ég mér ekki fært að pikka meira á lyklaborðið.